Danska lögreglan býr sig undir stríð
07/12/09 • Flokkur: FréttirDanska lögreglan er búin að vera að vígbúa sig undanfarna mánuði í aðdraganda loftslagsráðstefnunnar. Nýjasta viðbótin er háþrýstibyssa sem einnig má fylla af táragasi, sýnist yfirvöldum svo.
Einnig er búið að útbúa tímabundna “varðhaldsaðstöðu” þar sem hægt er að koma fyrir hundruðum einstaklinga og láta þá dúsa þar í allt að tólf tímum án ákæru. Fangabúðirnar má sjá á myndinni hér að neðan. Ekki veitir af plássinu því leyfilegt er að handtaka hvern þann sem er staddur á mótmælum sem leyst eru upp af lögreglunni og er augljóslega gert ráð fyrir því að fjöldahandtökur muni eiga sér stað.
“Við viljum ekki vera í stríði við neinn“, sagði lögregluforinginn Per Larson og tók með því undir orð fjölmargra afganska og írakskra barna. „en við munum bregðast við því ef eitthvað óviðunandi á sér stað. Þetta er ekki hótun heldur upplýsingar til neytenda[1]“. Hvaða neytendur lögreglufulltrúinn átti við er óljóst enda sjaldgæft að fólk sækist eftir að „neyta“ vatns úr háþrýstibyssu.

Tímabundin varðhaldsaðstaða í Kaupmannahöfn. Eins og sjá má er húsnæðið til fyrirmyndar og á við besta hundahótel.
2 athugasemdir
Tilvísanir
- Svartsokka » Fréttir » Mótmælagangan – um 50.000 einstaklingar
- Svartsokka » Fréttir » Lögreglan ræðst inn í Cristianíu

