Critical mAss / Þyrping
21/10/10 • Flokkur: Fréttir
Náttúruverndarsinnar, hjólreiðafólk, foreldrar, systkini, plöntur, útigangsfólk, stúdentar, áhugamenn- og konur um ómenningu….. Critical Mass verður haldið þann föstudaginn 29. oktober frá 17:30 og lagt af stað frá Lækjartorgi. Í síðasta mánuði tók myndarlegur hjólreiðahópur yfir akgreinar á Hringbraut og Sæbraut og tafði umferð í þónokkurn tíma til að vekja athygli á öðrum fararskjótum en ósjálfbærum stöðutáknum sem gera lítið annað en að ferja fólk milli neyslustöðva og mannskemmandi þrælastörf kapítalísmans þess á milli. Það þarf að hægja á siðmenningunni því hún er löngu búin að brenna dekkin undan sér og jörðin orðinn sviðin eftir glórulausan akstur á felgunum einum.
Allir eru hvattir til að koma með málaða bannera, prenta út flugrit eða stensla boli, jafnvel mæta með gjallarhorn ef einhver býr svo vel.
Prentið út og dreifið flugritinu hér fyrir neðan að vild til að vekja athygli á látunum.
