Börn og auglýsingar
21/11/09 • Flokkur: FréttirFyrr í dag endursýndi RÚV myndina Consuming Kids: The Commercialization of Childhood , sem fjallar um áhrif auglýsinga á börn. Myndin er afar áhugaverð að því að leyti að farið er dýpra í áhrifamátt auglýsinga en skyndibitatrikkið þar sem nýjasta Walt Disney leikfangið er sett í barnabox.
Í myndinni er minnst á vettvangsrannsóknina, scientific stalking, þar sem markaðsfræðingar fara með börnum í verslanir og fylgjast með hvernig þau velja í innkaupakörfuna. Auðvitað velur barnið Skúbídú kexið því það veit að það er betra á bragðið. Einnig er talað um rannsóknir þegar farið er inn á heimili og farið er yfir fataskápa barna og fylgst með þeim í baði svo hægt sé að hanna nýja þörf fyrir börnin þar. Svo er fjallað um hvernig sköpunargáfur barna eru bældar þegar krakkar geta ekki lengur leikið sér í þykjustuleik því þau eiga ekki alvöru Spiderman búning sem er seldur í Toys´r-Us. Aldur stúlkna sem verða fyrir eituráhrifum popkúltúrsins fer einnig lækkandi og nú vilja börn allt niður í fjögurra ára klæðast magabolum og mála sig áður en þau fara í leikskólann. Neyslusérfræðingar skella svo að lokum allri ábyrgð á foreldra. En það eru víst foreldrar sem eiga að sjá um að ala upp börnin sín. Hvað gerist þá þegar börnin eru ekki með foreldrum sínum?
Tveim dögum eftir að myndin var fyrst sýnd tók RÚV viðtal við Friðrik Eysteinsson, aðjúnkt í Markaðsfræði við viðskiptafræðideild HÍ, þar sem hann fullyrðir að ENGAR rannsóknir hafa sýnt fram á að auglýsingar fyrir og eftir barnaefni í sjónvarpi hafi neysluhvetjandi áhrif á börn. Þetta viðtal er gert í kjölfar tillögu til breytinga á auglýsingaefni beint að börnum 5 mínútum fyrir og eftir barnaefni í sjónvarpi.
Svartsokka vil benda Friðriki á þessa rannsókn, þennan vef, þessa, þessa og þessa rannsókn ef þær skyldu nú óvart hafa farið framhjá honum.
En auðvitað þarf Svartsokka ekki benda honum á þessar rannsóknir því þessi fullyrðing hans fellur algjörlega um sjálfa sig. Ef auglýsingar beindar að börnum hefðu engin neysluhvetjandi áhrif, afhverju er þá barist um að sýna þær í kringum barnatímann?

