Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Bike-Bloc

23/11/09 • Flokkur: Fréttir

Net aðgerðarsinna sem kallar sig Climate Camp er að undirbúa nýtt tól sem nota á í borgaralegri óhlýðni á COP15 í Kaupmannahöfn í desember. Hönnuðir, rafsuðufólk, aðgerðarsinnar og verkfræðingar eru þessa stundina að hanna og setja saman nýtt farartæki úr endurunnum reiðhjólum sem mun ná mikilli breidd, hæð eða hvorutveggja til þess að taka á gúmmíkúlubyssuglöðum, piparspreyjandi og skemmdarverkaelskandi (stóriðnaður) óeirðarlögreglufólki sem mun að öllum líkindum beita ofbeldi að fyrra bragði.

Frumgerðin verður byggð í Bristol, Englandi en lokaútgáfan í Kaupmannahöfn.

Nýja farartækið vonandi ryður veginn fyrir öllum þeim sem vilja stöðva þetta náttúruviðskiptabrask sem mun eiga sér stað á COP15 ráðstefnunni eftir rúmlega 2 vikur.

Hægt er að lesa meira um aðgerðina hér

Ef þú býrð í Kaupmannahöfn og átt ónýtt hjól sem þú vild leggja í þessa aðgerð þá getur þú farið með það í The Candy Factory, Lærkevej 11, 2400 NV. (næsta lestarstöð er Nørrebro).

Merkimiðar:

Ekki hægt að gera athugasemd.