Aurskriða í Kína/Tíbet
08/8/10 • Flokkur: Fréttir
Í gærnótt féllu miklar aurskriður í Gansu héraði í Kína. Svæðið kallast Zhouqu og er stór hluti af Tíbet. Fjölmiðlar hafa greint frá því að 45 þúsund manns hafa verið fluttir frá svæðinu. Um 130 manns hafa nú þegar látið lífið og 2000 manns er enn saknað. Aurskriður eru tíðar á svæðum sem hafa lent í miklu skógarhöggi og er Zhouqu engin undantekning. Tré binda jarðveginn saman og halda aftur af aurskriðum ef þær myndast í miklum rigningum. Svæðið er mjög einangrað og notast bændur við eldivið sér og sínum til upphitunar en þurfa að keppa við skógarhöggsfyrirtæki sem hafa gengið hart á skógi vaxið fjalllendið.
Það má rekja ástæður hörmunganna til stíflu sem var smíðuð tímabundið sem CDM verkefni til að selja útstreymisheimildir. Það fyrirkomulag, að gera mengunarkvóta að viðskiptatækifæri, hefur verið gagnrýnt gríðarlega og hægt að lesa meira um það í greininni Don´t Buy the Lie sem birtist á Svartsokku í kringum Loftslagsráðstefnu SÞ sem haldin var í Kaupmannahöfn í lok síðasta árs.
Undanfarna daga hefur rigningarvatn safnast fyrir aftan stífluna vegna mikils óveðurs og orðið að 3 km löngu fljóti sem flæddi svo yfir og endaði með ofangreindum hörmungum.
Fjölmiðlar virðast ekki ætla að setja aurskriðurnar í stærra samhengi og fjalla um ástæður hörmunganna. Það kemur þó ekki á óvart og er Haítí síðasta dæmið um hvernig björgunaraðgerðir vesturlanda tóku yfir alla umræðu sem skapaðist en ekki ágang Bandaríkjanna á skóglendi Haítí síðustu aldir.
