Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

Árás á alþjóðlegu hafsvæði

31/5/10 • Flokkur: Fréttir

Að sögn sjónarvotta hóf ísraelskir hermenn skothríð um leið og þeir stigu um borð í bátinn

Að sögn sjónarvotta hóf ísraelskir hermenn skothríð um leið og þeir stigu um borð í bátinn

Íbúum Gaza svæðisins hefur verið haldið í einangrun frá því árið 2007. Ísrael hefur lagt bann við innflutningi til svæðisins, fyrir utan naumt skammtaða neyðaraðstoð sem flutt er inn af alþjóðlegum hjálparsamtökum. Bannið hefur valdið því að meirihluti allra heimila á Gaza svæðinu fá ekki uppfyllt matarþörfum sínum og hafa heldur ekki daglegan aðgang að vatni. Á svæðinu ríkir því algjör skortur á nauðsynjavörum.

Í fyrsta tölublaði Rósta var fjallað um það að tvenn hjálparsamtök, Hreyfingin fyrir frjálsri Gaza og Tyrkneski hjálparsjóðurinn, hefðu uppi áætlanir um að senda smáflota til Gaza svæðisins með hjálpargögnum fyrir íbúa svæðisins. Fréttin hljóðaði svo:

Hreyfingin fyrir frjálsri Gaza (Free Gaza Movement) og Tyrkneski hjálparsjóðurinn (Turkish Relief Foundation) hafa sent frá sér tilkynningu þar sem þau opinbera áform sín um að senda í sameiningu smáflota, sem samanstendur af 10 skipum, til hins umsetna Gaza-svæðis í vor. Fleiri samtök, frá Grikklandi, Írlandi og Svíþjóð, hafa einnig tilkynnt að þau muni senda skip sem slást munu í för með smáflotanum. Yfirmaður Tyrkneska hjálparsjóðsins, Bulent Yildirim sagði í tilkynningunni: „Við munum sigla af stað til Gaza með vorinu, og áfangahöfn okkar er frelsi; frelsi fyrir þá einu og hálfu milljón Palestínubúa sem neitað er um rétt sinn til að endurbyggja samfélag sitt. Við munum ekki hætta siglingunum fyrr en Ísrael afnemur umsátrið.“

Auk farþegaskipa sem munu ferma stjórnmálamenn frá ýmsum heimshornum, fréttafólk og mannréttindabaráttufólk til svæðisins, mun flotinn samanstanda af tveimur gámaflutningaskipum sem bæði verða drekkhlaðin af varningi sem Ísrael hefur haldið uppi banni við að sé fluttur til Gaza svæðisins síðan árás þeirra á íbúa landsvæðisins lauk fyrir ári síðan. Hér er um að ræða byggingarefni, rafstöðvar og námsefni svo fátt eitt sé nefnt. Annað gámaflutningaskipanna fengu samtökin afhent frá Perdana sjóðnum í Malasíu en hitt er í eigu Tyrkneska hjálparsjóðsins. „Þetta ólöglega umsátur Ísraela og stöðug þvermóðska þeirra hafa alþjóðleg lög og reglugerðir að athlægi. Heimsborgarasamfélagið vill sýna fram á, að ef ríkisstjórnir okkar eru ekki tilbúnar til að taka afstöðu gegn, og stöðva hrottalega meðferð Ísraela á palestínska fólkinu, þá erum við tilbúin til þess í þeirra stað.“ segir í tilkynningu frá Tyrkneska hjálparsjóðnum.

Í ágúst árið 2008 sendi Hreyfingin fyrir frjálsri Gaza tvö skip til svæðisins. Þetta voru fyrstu erlendu skipin til að leggja að höfn þar í 41 ár. Síðan þá hefur sjö sinnum verið siglt með hópa af stjórnmálafólki, meðlimi mannréttindasamtaka og fjölmiðla til svæðisins, svo þau geti borið vitni um þá eyðileggingu og hörmung sem fólkið á Gaza svæðinu þarf að lifa við af hendi Ísraela. Þessar siglingar fara mikið fyrir brjóstið á Ísraelum, sem grípa sífellt til meira harðræðis til að hindra að þær nái til áfangastaðar síns. Þrjár seinustu ferðirnar hafa verið stöðvaðar af ísraelska flotanum í trássi við lög. Sú fyrsta var stöðvuð í desember 2008, en þá sigldi ísraelski flotinn inn í skipið Dignity á meðan það var enn statt á alþjóðlegu hafsvæði. Skömmu seinna var Spirit of Humanity snúið við undir hótunum um að allir um borð yrðu skotnir ef skipinu yrði ekki snúið við. Það skip snéri aftur til Gaza sumarið 2009 en var aftur stöðvað og í það skiptið fangelsaði ísraelski flotinn alla áhöfnina og farþega skipsins í viku.

Í morgun bárust fréttir af því að ísraelskir hermenn hafi skotið á flotann, sært fjölda manns og drepið nítján. Þetta átti sér stað á meðan flotinn var enn á alþjóðlegu hafsvæði. Ísraelski herinn ber það fyrir sig að á hann hafi verið ráðist, með vopnum og „beittum áhöldum“. Hvort um hafi verið að ræða eldhúshníf, eða vel yddaðan blýant, á móti brynjuðum hermönnum skal ósagt látið. Á engum af þeim myndum og myndskeiðum sem birst hafa af atvikinu má sjá að áhöfn skipsins beri vopn, eða geri sig líklega til að verjast árásum Ísraelshers.

Það er þó athyglisvert að fylgjast með viðbrögðum alþjóðasamfélagsins, þar sem stjórnmálamenn vara sig á að fordæma árásirnar, en tala þess í stað um að rannsaka þurfi hvað átti sér stað. Almenningur hefur hins vegar brugðist snarlega við og efnt hefur verið til mótmæla gegn framförum Ísraela víða um heim. Hér á landi fara slík mótmæli fram á vegum samtakanna Ísland-Palestína, við Utanríkisráðuneytið kl. 17 í dag (31.maí).

Merkimiðar: , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.