Ál, egg og olía á eldinn
04/10/10 • Flokkur: FréttirÁlgirðingu hefur verið komið upp umkringis Alþingishúsið enda fara brátt að hefjast mótmæli sem boðað var til í tilefni af stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur. Girðingin er sett upp sökum þess að plastborðarnir, sem lögregla notaði áður, virtust ekki virka og fór fólk undir þá og yfir, og jafnvel í gegn um. Að sögn mbl.is lét lögreglan smíða girðingunna hér á landi í kjölfar janúarmótmælanna fyrr á þessu ári. Ekki var tekið fram hvort um var að ræða ál frá Alcoa, Rio Tinto Alcan eða Century Aluminum en grunnefnið í þeim er arðrán, ekki ósvipað því sem fólkið á Austurvelli mótmælir.
Hinum megin við álgirðinguna hefur verið raðað upp tómum olíutunnum, og er byrjað að heyrast í þeim taktfast ákall um sanngjarnari heim. Ekki fylgir sögunni hvort tunnurnar séu styrktar af olíufyrirtækjum en Sokkan vonar að þær komi úr ruslinu. Á sama tíma fagna eggjaframleiðendur aukinni sölu á eggjum á sem framleidd eru í gluggalausum verksmiðjubúum. Af þessum sökum hvetur Svarsokka fólk til að henda fremur ónýtu grænmeti en nýkeyptum eggjum.

