Svartsokka

hlutdrægni við mótlæga fréttamennsku

600 mál á borð laganema

13/12/09 • Flokkur: Fréttir

HandtökurHópur laganema sem kallar sig RUSK veitir lagalega aðstoð handa því fólki sem var handtekið síðustu daga. Nú sem komið er hafa þeim borist 600 mál vegna ágangs lögreglu í göngunum í gær og í dag og búist er við að þeim fjölgi. “Lögreglan er að handtaka hvern þann sem þeim dettur í hug og er ekki að fara eftir þeim reglum sem voru settar fyrir ráðstefnuna.” segir laganeminn Marc Jorgensen. ”

Af þeim 1300 manns sem hafa verið handteknir eru fjórir í varðhaldi og sú tala getur aldrei afsakað slíka aðgerð. Það verður að vera samræmi milli þeirra upplýsinga sem þeir hafa um grunaða og þess fjölda sem þeir handtaka” heldur hann svo áfram.

Farið verður fram á að aðgerðir lögreglunnar verði rannsakaðar. Blaðamannafélög eru einnig byrjuð að undirbúa mál eftir að hundum var sigað á þá til að koma þeim frá vettvangi. Þetta er brot á þeim réttindum sem blaðamenn hafa til upplýsingamiðlunar.

“Danmörk hefur sýnt að þeir eru aðeins einu skrefi frá því að vera lögreglu ríki. Handtökurnar eru skýrt brot á sáttmála Sameinuðu Þjóðana um pyntingar” segir Tord Björk, talsmaður Friends of the Earth í Svíþjóð.

Merkimiðar: , , , , , , ,

Ekki hægt að gera athugasemd.