‘Viðburðir’ Safn
Mótmæli við utanríkisráðuneytið »
Félagið Ísland-Palestína efnir til mótmælastöðu við Utanríkisráðuneytið, Rauðarárstíg 25, í dag (31.maí) klukkan 17.00. Þar verður árásum ísraelsher á skipalest með hjálpargögn fyrir Gaza mótmælt og íbúum Palestínu sýnd samstaða. Mótmælin eiga að senda ráðamönnum skýr skilaboð að þeir beiti [...]
REYKJAVÍK-9 / styrktartónleikar »
Stórtónleikar verða haldnir á Austurvelli í dag, laugardaginn 15.maí kl. 14:00, til stuðnings níumenningunum sem eru ákærðir fyrir árás á Alþingi. Meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum eru Hjaltalín, Páll Óskar, KK og Ellen, Ari Eldjárn og fleiri. Ætlunin er að tónleikarnir verði stuðningssamkoma fyrir hina [...]
Opinn félagsfundur MFÍK »
Þriðjudaginn 4.maí 2010 mun Sigrún Sigurðardóttir menningarfræðingur fjalla um líf og reynslu flóttamanna út frá ljósmyndasýningunni Heima - heiman sem opnaði í Ljósmyndasafni Reykjavíkur haustið 2008. Fundurinn fer fram í Friðarhúsi, Njálsgötu 87 og opnar húsið kl. 18.30. Matur verður seldur á hóflegu verði í [...]
Endurkoma Hljómalindar »
Stofnfundur samvinnufélagsins Hljómalind svf verður haldinn sunnudag 11.apríl nk. að Efstasundi 26, 104 Reykjavík, kl. 21:00. Kynnt verður í stórum dráttum tilgangur og starfsemi félagins. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt í uppbyggingu og starfsemi félagsins eru velkomnir. ------- The founding meeting of Hljómalind [...]
Menning og klám í Háskóla Íslands »
Opinn umræðufundur í hádeginu miðvikudaginn 24. mars 2010 Klámvæðing og klámmenning fer vaxandi í íslensku samfélagi. Klámvæðing merkir að sífellt er daðrað við táknmyndir og tilvísanir kláms í dægurefni þannig að mörkum hins „eðlilega“ og leyfilega er stöðugt ögrað og þau víkkuð út. Andstaða gegn [...]
Útgáfugleði Rósta »
Í tilefni af fyrstu útgáfu fréttablaðsins Róstur verður haldið útgáfu- og styrktarpartí á skemmtistaðnum Venue, Tryggvagötu 22. fimmtudaginn 11.mars. Þau sem fram koma: DLX ATX Uppistandskonur Ljóðaslamm Open Mic DJ Artoflistening DJ Elvar Húsið opnar klukkan 20:00 og aðgangseyrir er frjáls en það sem safnast [...]
Frír matur á hverjum laugardegi »
Food not bombs gefur gestum og gangandi ljúffengan mat á hverjum laugardegi kl.14 á Lækjartorgi. Upplagt er að fá sér hollan matarbita sem beint er gegn offramleiðslu og ofurvaldi matvöruverslana. Aðstoð við matlagninguna er líka vel þegin frá þeim sem sjá sér það fært. Food not bombs trúir því að „hungur og [...]
COP 15 mótmæli »
Nú er vika í loftslagsráðstefnuna í Kaupmannahöfn og pólitíkusarnir eru nú þegar farnir að pússa látúnsbarkana til þess að geta flutt okkur einhvern fagurgalann um það hvernig allt verður allt í lagi, ef aðeins við treystum þeim og þeirra smjaðri og kaupum nóg af orkusparandi ljósaperum. Á meðan sendir Svartsokka [...]
Þyrpíng/Critical Mass 27.11.09 kl. 17.00 »
Þann 27. nóvemer 2009 hjólum við af stað í þyrpingu frá Lækjartorgi kl. 17.00. Þetta er gert til þess að vekja athygli á hjólreiðum og benda á að þær eru samgöngumáti jafnháar bílum. Hjólað verður á götunum svo hjólreiðarnar verði vel sýnilegar. Tökum aftur göturnar okkar og sýnum að það er hægt að [...]









